Kolbeinn Höður hársbreidd frá því að slá glænýtt Íslandsmet sitt

\"\"

Frjálsíþróttakappinn Kolbeinn Höður Gunnarsson er heldur betur að gera það gott þessa dagana en hann stundar nú íþrótt sína samhliða námi í University of Memphis í Bandaríkjunum.

Kolbeinn Höður sló 27 ára gamalt Íslandsmet Jóns Arnars Magnússonar á dögunum þegar hann hljóp 200 metra hlaup á 20,96 sekúndum á móti í Memphis. Íslandsmet Jóns Arnars var 21,17 sekúndur og sett 6. júní 1996.

Kolbeinn var svo hársbreidd frá því að slá glænýtt Íslandsmet sitt um nýliðna helgi þegar hann hljóp 200 metrana á 20,99 sekúndum. Það skilaði honum þriðja sæti á Joe Walker boðsmótinu í í Mississippi. Vísir greinir frá.

Hinn 22 ára gamli Kolbeinn er uppalinn á Akureyri en færði sig um set og keppti fyrir Fimleikafélag Hafnarfjarðar áður en hann hélt út til Bandaríkjanna.

Viltu deila þessari frétt?

Tengdar fréttir

Scroll to Top