Glæsilegt atriði MA í Gettu Betur – Myndband

\"\"

Menntaskólinn á Akureyri datt út úr Gettu Betur spurningakeppni framhaldsskólanna í síðustu viku. Lið skólans laut í lægra haldi fyrir Kvennaskólanum í Reykjavík.

Í undanúrslitaþáttum Gettu Betur er venjan að skólarnir bjóði upp á tónlistaratriði. Tónlistaratriði Menntaskólans var einkar glæsilegt. Eyfirðingurinn Birkir Blær Óðinsson flutti lag Ninu Simone Be My Husband í loop-útfærslu.

Hægt er að sjá atriði Birkis á vef RÚV hér.

Birkir flutti sama atriði í söngkeppni MA í febrúar. Þar lenti hann í öðru sæti og fékk verðlaun fyrir vinsælasta atriðið.

 

Viltu deila þessari frétt?

Tengdar fréttir

Scroll to Top