Enn tapa Þórsarar

\"\"

Martraðabyrjun Þórsara í Inkasso-deildinni í fótbolta heldur áfram en liðið tapaði með minnsta mun fyrir Þrótti Reykjavík þegar liðin mættust í Laugardal í dag.

Sigurður Marinó Kristjánsson kom Þórsurum yfir á lokamínútu fyrri hálfleiks þegar hann skoraði laglegt mark beint úr aukaspyrnu.

Þróttarar jöfnuðu metin í upphafi síðari hálfleiks og tókst svo að knýja fram sigur með marki á síðustu mínútu venjulegs leiktíma. Lokatölur 2-1 fyrir Þrótti og Þórsarar því enn án stiga eftir þrjár umferðir.

Þróttur R. 2 – 1 Þór 

0-1 Sigurður Marinó Kristjánsson (\’45)
1-1 Víðir Þorvarðarson (\’51)
2-1 Hlynur Hauksson (\’89)

Viltu deila þessari frétt?

Tengdar fréttir

Scroll to Top