Akureyringurinn og Þórsarinn Hörður Fannar Sigþórsson hefur ákveðið að leggja handboltaskóna á hilluna eftir 21 ár í meistaraflokki, tæpa 440 leik og yfir 1000 mörk. Hörður greindi frá þessu á Twitter síðu sinni í gær, hann segir að nú sé komið að ákveðnum kaflaskilum í lífi sínu.
„Handboltinn hefur átt allan minn frítíma undanfarin ár og hef ég eignast margar góðar minningar og vini á þessum tíma. Lifi handboltinn,“ skrifar Hörður sem lék með Þór, Akureyri og HK hér á Íslandi. Undanfarin níu ár hefur hann búið í Færeyjum og leikið með Kyndli, Klaksvík og KÍF frá Kollafirði. Auk þess lék hann um tíma með Aue í Þýskalandi.
Ákveðin kaflaskil í lífinu 😉 Eftir 21 ár í meistaraflokki, tæpa 440 leiki og yfir 1000 mörk er komið að því að leggja skóna á hilluna. Handboltinn hefur átt allan minn frítíma undanfarin ár og hef ég eignast margar góðar minningar og vini á þessum tíma ❤ Lifi handboltinn 💪 pic.twitter.com/dRtQXOOCXL
— Hörður Fannar Sigþ. (@hofadir) April 12, 2021
