Ráðist í viðhald á malbikuðum götum á Akureyri

Á næstu vikum verður ráðist í viðhald á malbikuðum götum á Akureyri. Samtals nemur vegalengdin sem framkvæmdir ná til hátt í þremur kílómetrum á 12 stöðum í bænum. Frá þessu er greint á vef bæjarins.

„Samkvæmt fjárhagsáætlun ársins á að verja 129 milljónum króna í viðhald malbikaðra gatna. Undir málaflokkinn falla yfirbræðslur, holufyllingar, lagfæringar á kantsteinum og hraðahindrunum og ófyrirséð viðhald. Verktími er áætlaður frá byrjun júní og fram í ágúst. Nánari tímasetningar fyrir einstakar götur liggja ekki fyrir á þessari stundu en stefnt er að því að upplýsa um framvindu og áætlun jafnóðum,“ segir í tilkynningu.

Sérstök áhersla verður lögð á góða upplýsingagjöf þegar loka þarf götum að hluta eða í heild. Athygli er vakin á heimasíðu bæjarins sem og samfélagsmiðlunum Facebook og Twitter þar sem slíkar tilkynningar má finna.

Smelltu hér til að skoða áætlaðar gatnaframkvæmdir sumarsins eftir svæðum.

Viltu deila þessari frétt?

Tengdar fréttir

Scroll to Top