Það hefur verið sannkölluð blíða á Akureyri um helgina og góða veðrið mun halda áfram í dag. Veðrið hefur verið það gott að töluverð umræða hefur skapast á samfélagsmiðlinum Twitter. Við tókum saman nokkur skemmtileg tíst hér að neðan.
Sjá einnig: Sól og blíða á Akureyri – Hitinn allt að 20 stig í dag
Það er ekki bara veðrið sem er gott á Akureyri

Rithöfundurinn Stefán Máni hefur fengið nóg af montinu í Akureyringum
Hvernig blokkar maður veðurstatusa frá Akureyri?
— Stefán Máni (@Stefan_Mani_) June 5, 2021
Veðrið var of gott fyrir suma
Sendið hjálp! Það er of gott veður á Akureyri! pic.twitter.com/m024DjUXhv
— Mr. Bergsson (@jmbergsson) June 5, 2021
Sjónvarpsmaðurinn Örn Úlfar var feginn því að komast loksins í útlandastemningu
Gaman að komast loksins til útlanda á Akureyri í dag. pic.twitter.com/2glZUBLS6S
— Örn Úlfar Sævarsson 🇺🇦 (@ornulfar) June 5, 2021
Þeir sem skelltu sér norður sáu ekki eftir því
😂
Á Akureyri er alltaf svo mikil sól að bílarnir þar eru upplitaðir! pic.twitter.com/CR4lLjcKfQ
— Theodór Ingi (@TeddiLeBig) June 5, 2021
Sundlaugin á Akureyri er sú besta á landinu, sérstaklega í svona veðri
Í fáfræði minni hélt ég að Sundhöll Selfoss væri besta sundlaug á landinu. Ég ætla að henda titlinum yfir á Sundlaug Akureyrar og gef henni ⭐️⭐️⭐️⭐️⭐️. #akureyri
— Guðmundur Karl Sigurdórsson (@dullari) June 5, 2021
Akureyringar í dag https://t.co/WJpwLprgyw
— Sibba (@Sibbababb) June 5, 2021
Um góða veðrið á Akureyri hef ég þetta að segja: ég samgleðst ykkur innilega!
— OlgaMKC (@olgacilia) June 6, 2021
