Ekki fleiri frjókorn í júní á Akureyri síðan árið 2005

Heildarfjöldi frjókorna sem mældist á Akureyri í júní er sá mesti sem hefur mælst í bænum frá árinu 2005. Flest fjókornanna voru birkifrjó en þau mældust með því mesta sem hefur mælst frá því að mælingar hófust. Þetta kemur fram í tilkynningu frá Náttúrufræðistofnun Íslands.

Fjöldi frjókorna á Akureyri var undir meðallagi í apríl og maí en vorið var sólríkt, kalt og þurrt um allt land og tók gróður seint við sér. Það var áfram kalt í byrjun júní en það virðist ekki hafa komið að sök.

Frjótíma birkis er lokið en aðalfrjótími grasa er í júlí og ágúst samkvæmt Náttúrufræðistofnun Íslands. Frjókorn dreifast mest þegar veður er hlýtt og þurrt og í smá golu. Náttúrufræðistofnun ráðleggur þeim sem hafa frjókornaofnæmi að þurrka þvott inni, sofa með lokaðan glugga og slá gras fyrir blómgun svo ekki myndist frjókorn.

Viltu deila þessari frétt?

Tengdar fréttir

Scroll to Top