Akureyringarnir Jóhann Helgi Hannesson og Elín Dóra Birgisdóttir giftu sig í gær. Skóbúnaður Jóhanns í brúðkaupinu hefur vakið athygli. Jóhann Helgi spilar fótbolta með Þór og hann var mættur í takkaskóm í brúðkaupið.
Sjá einnig: Jóhann Helgi markahæsti leikmaður í sögu Þórs
Jóhann var í hvítum skrúfutakkaskóm á mynd sem hefur verið dreift á samfélagsmiðlum. Fréttamaðurinn Óðinn Svan birti mynd af Jóhanni á Twitter í gær.

„Jóhann reimaði á á sig skrúfutakkana í hádeginu i gær. Setti eitt á móti Gróttu og setti svo þrennu í Akureyrarkirkju i dag,“ skrifar Óðinn á Twitter. Kollegi Jóhanns úr Selfossi, Gary Martin, var hrifinn af uppátækinu og fleiri hafa tjáð sig um þetta skemmtilega atvik á Twitter:
Jóhann Helgi reimaði á sig skrúfutakkana í hádeginu i gær. Setti eitt á móti Gróttu og setti svo þrennu í Akureyrarkirkju i dag 👑 pic.twitter.com/gGIGZZZFK9
— Óðinn Svan Óðinsson (@OdinnSvan) July 24, 2021
That’s insane 👏🏻👏🏻👏🏻👏🏻👏🏻👏🏻👏🏻👏🏻 love this 🤣🤣🤣 https://t.co/UeQNzpAlVD
— Gary martin (@gazbov10) July 24, 2021
Sorry en það er bara mad respect á þetta! https://t.co/wwZcLsI2yE
— Ingimar H. Finnsson (@ingimarh) July 24, 2021
Hann gifti sig bara í skrúfunum https://t.co/rgnkl10tN2
— Jón Kári Eldon (@jonkarieldon) July 24, 2021
Hversu hart er að gifta sig í skrúfutökkum
— Dóri Ká (@halldork) July 24, 2021
