KA burstaði Tindastól

KA og Tindastóll áttust við í gær í Kjarnafæðismótinu í Boganum.
KA menn fóru nokkuð létt með Tindastól en leikurinn endaði 12-0 fyrir KA.
Elfar Árni Aðalsteinsson gerði sér lítið fyrir og skoraði 5 mörk í leiknum.

Mörk leiksins

1-0 Elfar Árni Aðalsteinsson (\’17)
2-0 Elfar Árni Aðalsteinsson (\’36)
3-0 Elfar Árni Aðalsteinsson (\’38)
4-0 Sæþór Olgeirsson (\’49)
5-0 Sæþór Olgeirsson (\’56)
6-0 Steinþór Freyr Þorsteinsson (\’64)
7-0 Hrannar Björn Steingrímsson (\’66)
8-0 Elfar Árni Aðalsteinsson (\’69)
9-0 Bjarni Aðalsteinsson (\’74)
10-0 Hallgrímur Mar Steingrímsson (\’84)
11-0 Áki Sölvason (\’87)
12-0 Elfar Árni Aðalsteinsson (\’90)

KA hefur nú skorað 25 mörk í 3 leikjum í mótinu og aðeins fengið á sig 2 mörk. En Elfar Árni hefur skorað 12 af mörkum liðsins.

Næsti leikur liðsins er gegn Þór næsta sunnudag kl 14 í Boganum.

Staðan í A-riðli Kjarnafæðismótsins
\"\"

Viltu deila þessari frétt?

Tengdar fréttir

Scroll to Top