Harður árekstur á Akureyri – Lögreglan leitar að vitnum

lögreglan

Í morgun klukkan 10:16 fékk lögreglan á Akureyri tilkynningu um harðan árekstur á gatnamótum Þingvallastrætis og Þórunnarstrætis á Akureyri.

Í tilkynningu frá lögreglunni segir að málið sé til rannsóknar en að það vanti sárlega að heyra í vitnum sem kunna að hafa séð aðdraganda óhappsins.

Vitni eru beðin um að hringja í lögregluna á skrifstofutíma í síma 444-2800.

Viltu deila þessari frétt?

Tengdar fréttir

Scroll to Top