Snapchat gefur út sólgleraugu

\"sólgleraugu\"

Snapchat er ekki lengur bara \“app\“ í símann þinn.

Snapchat tilkynnti á föstudaginn að þeir hafi verið að vinna að sólgleraugum um nokkurra ára skeið. Gleraugun hafa þá sérstöðu að innbyggð myndavél er í þeim, sem getur tekið upp 10 sekúnda löng myndbönd. Myndböndin munu svo birtast í,,memories\“ hluta Snapchat forritsins, þaðan geta notendur svo valið að senda myndböndin til vina eða setja í ,,story\“.

Útgáfudagur hefur ekki verið tilkynntur en þeir segja \“bráðlega\“. Verðið í Bandaríkjunum mun verða $129 eða tæpar 15 þúsund krónur íslenskar.


\"snaphringur\"

Myndböndin munu verða hringlaga, sem á að líkja eftir því hvernig mannsaugað sér.


\"snap2\"

Myndböndin sendast þráðlaust í ,,memories\“ hluta Snapchat, þaðan geta notendur sent það áfram til vina.


\"snapbox\"

Með gleraugunum fylgir hleðslubox en hleðsan á gleraugunum á að endast í einn dag.


Hér er hægt að horfa á kynningar myndband sem Snapchat gaf út.

Fréttatilkynning

Viltu deila þessari frétt?

Tengdar fréttir

Scroll to Top