„Verksmiðjustúlkan Jana í Höfða\“

\"\"

Í tilefni 100 ára afmælis fullveldis Íslendinga 2018, og 20 ára afmælis Iðnaðarsafnsins á Akureyri, verður sýningin „Verksmiðjustúlkan Jana í Höfða\“ opnuð á efri hæð safnsins laugardaginn 10. febrúar kl.14.00.

Jana hét fullu nafni Júlíana Andrésdóttir og var fædd 21. júní 1901. Hún er sögumaður sýningarinnar og samnefnari fyrir það fólk sem „vann á vélunum“ eins og það var kallað. Hún hóf störf í Klæðaverksmiðjunni Gefjuni á Gleráreyrum 1. júní 1917, þá ný orðin 16 ára. Þar vann hún í fjögur ár en fór þá í aðrar vinnur. Hún kom til baka nokkrum árum síðar og vann á Gefjun í samfellt 40 ár.

Sýningin er byggð að hluta til á viðtali sem tekið var við Jönu. Á þessum árum urðu miklar breytingar; tvær heimstyrjaldir geisuðu, verðbólga, vöruskortur og vöruskömtmun. Til að mynda voru verksmiðjurnar alla jafna hitaðar upp með kolum en í fyrri heimsstyrjöldinni hækkuðu þau mjög í verði og var jafnvel erfitt að fá þau. Þá var verksmiðjan hituð með sverði (mó). Hann þurfti að stinga upp, aka með hann heim að Gefjun og hlaða upp í hrauka. Einnig var mikil vinna að koma í veg fyrir að vatnið frysi í leiðslunum. Þegar saman fór frostaveturinn mikli og skortur á kolum var það mikið og kaldsamt verk. En allir hjálpuðust að við að láta þetta ganga.

Júlíana Andrésdóttir lést 1. júní 1994, 92 ára að aldri.

Viltu deila þessari frétt?

Tengdar fréttir

Scroll to Top