Uppbygging á upphituðum gervigrasvelli á Dalvík

\"\"

Í dag samþykkti sveitarstjórn Dalvíkurbyggðar samning um uppbyggingu íþróttasvæðis á Dalvík en samningurinn þess efnis var undirritaður í gær, mánudaginn 14. maí. Undir samninginn rita sveitarstjóri fyrir hönd Dalvíkurbyggðar og formaður UMFS. Þetta kemur fram í fréttatilkynningu frá Dalvíkurbyggð.

Í tillögu að deiliskipulagi fyrir íþróttasvæðið á Dalvík sem nú hefur verið samþykkt og staðfest er gert ráð fyrir uppbyggingu á upphituðum gervigrasvelli á íþróttasvæðinu.

Dalvíkurbyggð og UMFS hafa skipað sameiginlega nefnd sem verður ráðgefandi og eftirlitsaðili með framkvæmdinni. Gert er ráð fyrir að framkvæmdir við völlinn hefjist á haustmánuðum 2018, en þá verður keppnisvöllurinn rifinn upp og hafist handa við jarðvinnu. Gert er svo ráð fyrir að gervigrasið verði lagt vorið 2019.

Viltu deila þessari frétt?

Tengdar fréttir

Scroll to Top