Frábær stemning á Akureyri yfir fyrsta leik Íslands á HM – Myndir

\"\"Ísland og Argentína eigast við í fyrsta leik Íslands á HM í knattspyrnu karla. Það er erfitt að finna Íslending sem er ekki að fylgjast með leiknum í dag en á Akureyri hefur verið settur upp risaskjár í listagilinu.

Stemningin er frábær og margmenni mætt. Götubarinn sýnir einnig frá leiknum á skjá í portinu þar. Þegar þetta er skrifað er staðan í leiknum 1-1. Alfreð Finnbogason skoraði mark Íslands. Markmaðurinn okkar Hannes Þór Halldórsson gerði sér svo lítið fyrir og varði víti frá sjálfum Lionel Messi.

 

Viltu deila þessari frétt?

Tengdar fréttir

Scroll to Top