Mexíkósku landsliðskonurnar í Þór/KA framlengja samninga sína

Mexíkósku landsliðskonurnar Sanda Mayor og Bianca Sierrra sem leikið hafa með Þór/KA í Pepsi deild kvenna síðustu ár framlengdu samninga sína við félagið í dag.

Sandra og Bianca hafa verið með betri leikmönnum liðsins, en Sandra hefur skorað 55 mörk í 64 leikjum fyrir liðið og Bianca hefur leikið 42 leiki í vörninni.

Þá hefur einnig verið staðfest að þjálfari liðsins, Halldór Jón Sigurðsson, mun halda áfram með liðið næsta sumar.

Í Þór/KA fréttum er þetta helst. Fany og Bianca skutust \“heim\“ til að undirrita nýja samninga. #ÞórKA #fotboltinet #MexicanPower

This just in, @StefMayor & @Bfromthe_BAYY are back \“home\“ for a few days to sign new contracts. Excellent! pic.twitter.com/BGu7lLMxEZ

— Þór/KA (@thorkastelpur) October 29, 2018

Viltu deila þessari frétt?

Tengdar fréttir

Scroll to Top