Hún – Nýtt dansverk sýnt í Deiglunni

Nýtt dansverk eftir Ólöfu Ósk Þorgeirsdóttur verður sýnt í Deiglunni á fimmtudaginn kl. 20.30. Verkið sækir innblástur í álit samfélagsins á sjálfsöryggi ungra kvenna.

,,Á undanförnum árum hafa orðið miklar framfarir varðandi álit samfélagsins á því að konur eigni sér sína eigin kosti, styrk og möguleika, og því ber að fagna. Við þurfum ekki lengur að láta eins og það komi okkur á óvart þegar okkur er hrósað. Við vitum okkar eigin hæfni,\“ segir um verkið.

Miðinn kostar 1000 kr og ekki verður posi á staðnum.
Verkið verður sýnt aftur 17. október.

Dansarar í verkinu eru:
Arna Sif Þorgeirsdóttir
Birta Ósk Þórólfsdóttir
Erla Vigdís Óskarsdóttir
Karen Birta Pálsdóttir Maitsland
Ólöf Ósk Þorgeirsdóttir
Unnur Lilja Arnarsdóttir
Sunneva Kjartansdóttir
Antonía Hölludóttir

Viltu deila þessari frétt?

Tengdar fréttir

Scroll to Top