Handboltakappinn Oddur Gretarsson er í liði vikunnar í þýsku 1. deildinni í handbolta þessa vikuna eftir frammistöðu sína gegn Erlangen. Oddur var í miklu stuði og skoraði 8 mörk.
Það dugði liði hans, Balingen þó ekki til sigurs því Erlangen vann 32:27 sigur. Balingen er í 16. sæti með 15 stig, þremur stigum fyrir ofan fallsæti.
Okkar maður Oddur Gretarsson í liði umferðarinnar í þýsku Bundesligunni 💪🇩🇪
— Þór Handbolti (@AkureyriH) February 18, 2020
🔴⚪️Áfram Þór🔴⚪️#handbolti pic.twitter.com/CRr49q4BMR
