Ferðaskrifstofan Tripical hefur verið mikið í fréttum síðustu daga eftir tölvupóst sem var sendur á útskriftarnemendur í Menntaskólanum á Akureyri þar sem þeim var tilkynnt að þau hefðu minna en einn sólarhring til þess að ákveða sig hvort þau treystu sér í útskriftarferð til Ítalíu þann 8. júní.
Sjá einnig: Ætla sér ekki að endurgreiða útskriftarferð menntskælinga
Ferðaskrifstofan bauð ekki upp á þann kost að endurgreiða ferðina en bauð upp á fjóra valmöguleika í stað ferðarinnar, þar á meðal fimm daga ferð á Hellu. Nemendur vilja ferðina endurgreidda.

Töluverð umræða hefur skapast um málið í netheimum. Í athugasemd við frétt Kaffið.is vegna málsins segir einn aðili: „Ef þetta fyrirtæki nær að stela 40 milljónum af þessum krökkum þá vona ég ekkert ykkar sem þetta les eigi viðskipti við það í framtíðinni.“
Annar skrifar: „Þetta er bara ekki í lagi að koma svona fram. Spurning hvort 190 ellilífeyrisþegar hefðu fengið þessi sömu \“frábæru\“ tilboð við svipaðar aðstæður.“
Á samfélagsmiðlinum Twitter hefur einnig myndast lífleg umræða um málið þar sem flestir eru sammála um það að þjónusta Tripical sé í besta falli hlægileg.
Og Stracta var að bjoða 2 manna herbergi a 14.900 nóttina 😂
— Ragnar H. Sigtryggsson (@RaggiHS) June 6, 2020
Leggja þetta tripical rusl niður.
Ég er eigandi tripical
— Dóri Ká (@halldork) June 5, 2020
ja ok var bara að sjá núna að costa del hella ferðin hjá tripical var ekki einhver innsláttarvilla
— Tómas (@tommisteindors) June 4, 2020
Sölumaður hjá Tripical: "Já, sko við vitum þú lést okkur hafa 200.000 kr. fyrir ferð til Italíu en oki, hear me out, þú getur farið í Italíu og fengið COVID-19 eða eða, wait for it, eytt tveimur vikur á HELLU! BOOM .. ha hljómar vel rite" pic.twitter.com/P5fNdW7vQj
— Magnús H. Jónasson (@Maggih90) June 4, 2020
