Hamrarnir, venslalið Þór/KA, hófu leik í 2. deild kvenna í knattspyrnu í dag með góðum sigri á Grindavík.
Leiknum lauk með 2-1 sigri Hamranna. Iðunn Rán Gunnarsdóttir og Steingerður Snorradóttir skoruðu mörk Hamranna.
Hamrarnir fara því vel af stað en Grindavík var víða spáð sigri í deildinni áður en leiktíðin hófst.
Sigur og þrjú stig í fyrsta leik! Hamrarnir – Grindavík 2-1 (1-1). Iðunn Rán Gunnarsdóttir og Steingerður Snorradóttir með mörkin fyrir okkur. Birgitta Hallgrímsdóttir skoraði mark Grindvíkinga. #Hammertime #fotboltinet #heimavollurinn
— Hamrarnir (@hamrarnir) June 21, 2020
