Þór og KA unnu sigra

\"Áki

Tveir leikir fóru fram í Kjarnafæðismótinu í fótbolta í Boganum í gærkvöldi þar sem aðallið Þórs og KA voru í eldlínunni.

Inkasso-deildarlið Þórs lenti í vandræðum með 3.deildarlið KF þrátt fyrir að Þórsarar næðu tveggja marka forystu á fyrstu tólf mínútunum. Fjallabyggðadrengir gáfust ekki upp og jöfnuðu metin en Sigurður Marínó Kristjánsson tryggði Þórsurum sigurinn með marki beint úr aukaspyrnu.

Aðallið KA mætti KA 3 í síðari leik kvöldsins og hið ótrúlega gerðist eftir níu mínútur þegar C-lið KA komst yfir gegn A-liðinu.

Markahrókurinn Áki Sölvason tók leikinn hinsvegar í sínar hendur fljótlega í kjölfarið en alls skoraði þessi 17 ára gamli sóknarmaður fimm mörk í 7-1 sigri aðalliðs KA.

B-riðill

Þór 3 – 2 KF
1-0 Sveinn Elías Jónsson (\’2 )
2-0 Ármann Pétur Ævarsson (\’12, víti)
2-1 Valur Reykjalín Þrastarson (\’25 )
2-2 Heimir Ingi Grétarsson (\’49 )
3-2 Sigurður Marínó Kristjánsson (\’77 )

Smelltu hér til að sjá stöðuna í B-riðli.

A-riðill

KA 3 1 – 7 KA
1-0 Þröstur Mikael Jónsson (\’9 )
1-1 Áki Sölvason (\’15 )
1-2 Áki Sölvason (\’39 )
1-3 Baldvin Ólafsson (\’65 )
1-4 Áki Sölvason (\’69 )
1-5 Áki Sölvason (\’71 )
1-6 Áki Sölvason (\’75 )
1-7 Ívar Örn Árnason (\’80 )

Smelltu hér til að sjá stöðuna í A-riðli.

Viltu deila þessari frétt?

Tengdar fréttir

Scroll to Top