Tvær vikur án Covid smits á Norðurlandi eystra

Akureyri
Akureyri

Tvær vikur eru nú liðnar frá því að síðast var skráð virkt Covid-19 smit á Norðurlandi eystra. Enginn hefur verið skráður í sóttkví í lengri tíma.

Síðasta greindist nýtt smit á svæðinu 1. desember. Það smit greindist hjá einstaklingi í sóttkví.

Þrátt fyrir að ekkert virkt smit hafi verið á Norðurlandi eystra í tvær vikur og ekkert nýtt smit hafi greinst síðan 1. desember er svæðið enn skráð rautt á COVID-19 viðvörunarkerfinu. 

Það þýðir meðal annars að það er grímuskylda í almenningssamgöngum, verslunum, þegar farið er milli sóttvarnahólfa og í starfsemi sem krefst nándar. Fólk ætti að takmarka samveru við sína allra nánustu og fjöldatakmörkun er 5 til 20 manns. Þá er tveggja metra reglan enn í gildi.

Um Norðurland eystra segir í viðvörunarkerfinu: „Útbreiðsla þekktra smita í umdæminu er lítil, eingöngu á Akureyri. Fjöldi nýrra tilfella utan sóttkvíar er í lágmarki. Álag á heilbrigðiskerfi og viðbragðsaðila á svæði er eðlilegt miðað við árstíma og aðstæður.  Vegna vaxtar smita á öðrum svæðum og viðvarandi  álags á aðalsjúkrahús landsins er fólk beðið að halda sig með sínum nánustu og vinna heima ef mögulegt er.“

Viðvörunarkerfið var síðast uppfært sjöunda desember.

Viltu deila þessari frétt?

Tengdar fréttir

Scroll to Top