Benedikt búálfur á Spotify

Þekktasta lag fjölskyldusöngleiksins Benedikts búálfs, Komdu með inn í álfanna heim, er komið á alla helstu tónlistarveitur, þar á meðal Spotify. Leikfélag Akureyrar frumsýnir söngleikinn í Samkomuhúsinu í mars.

Sinfóníuhljómsveit Norðurlands leikur undir nýju uppfærsluna en í þessu lagi eru það þau Árni Beinteinn Árnason, sem leikur Benedikt búálf, og Þórdís Björk Þorfinnsdóttir, Dídí mannabarn, sem flytja.

Aðrir leikarar í söngleiknum eru Björgvin Franz Gíslason, Vala Guðnadóttir, Kristinn Óli betur þekktur sem Króli, Birna Pétursdóttir og Hjalti Rúnar Jónsson. Leikstjóri er Vala Fannell.

Viltu deila þessari frétt?

Tengdar fréttir

Scroll to Top