Sjöundi sigur KA/Þór í röð

KA/Þór vann enn einn leikinn í 1.deild kvenna um helgina þegar þær fengu Víkingskonur í heimsókn í KA-heimilið.

\"\"

Stelpurnar hafa verið algjörlega óstöðvandi að undanförnu og það var snemma ljóst í hvað stefndi í þessum leik. KA/Þór tók frumkvæðið snemma leiks og leiddi í leikhléi með 14 mörkum gegn 8.

Víkingskonur gáfust ekki upp í síðari hálfleiknum en tókst þó ekki að ógna forystu heimakvenna að neinu viti. Lokatölur 27-23 fyrir KA/Þór og sitja þær nú einar á toppi deildarinnar.

Mörthu Hermannsdóttur héldu engin bönd frekar en oft áður en hún skoraði

\"\"

meirihlutann af mörkum liðsins eða alls fjórtán. Katrín Vilhjálmsdóttir var langnæstmarkahæst með sex mörk.

Markaskorarar KA/Þór: Martha Hermannsdóttir 14, Katrín Vilhjálmsdóttir 6, Aldís Ásta Heimisdóttir 2, Kara Rún Árnadóttir 2, Kolbrún Gígja Einarsdóttir 2, Sandra Kristín Jóhannesdóttir 1.

Markaskorarar Víkings: Alina Molkova 9, Andrea Olsen 6, Steinunn Birta Haraldsdóttir 4, Júlía Rut Kristjánsdóttir 1, Kristín María Reynisdóttir 1, Ásta Björk Agnarsdóttir 1, Sophe Klapperich 1.

Viltu deila þessari frétt?

Tengdar fréttir

Scroll to Top