Knattspyrnumaðurinn Jakob Franz Pálsson hefur gengið til liðs við Venezia á Ítalíu.
Jakob er 18 ára en hann hefur spilað 15 leiki fyrir Meistaraflokk Þórs í Inkasso-deildinni og Lengjubikarnum. Þá á hann að baki 11 landsleiki fyrir U-17 og U-16 lið Íslands.
Það er okkur sönn ánægja að tilkynna að Jakob Franz Pálsson hefur verið lánaður til Venezia á Ítalíu með möguleika á sölu. Jakob er fæddur árið 2003 og á klárlega framtíðina fyrir sér. Til hamingju Jakob og gangi þér sem allra best!#DFK pic.twitter.com/f6bvhiyeIj
— Þór fótbolti (@Thor_fotbolti) February 1, 2021
