Aaron Mitchell sýnir í gestavinnustofu Listasafnsins á Akureyri

Kanadíski myndlistarmaðurinn Aaron Mitchell hefur dvalið í gestavinnustofu Listasafnsins undanfarnar vikur. Föstudaginn 25. mars kl. 20 opnar hann sýningu í gestavinnustofunni. Þar verður gestum boðið að skoða innsetningu og ræða við listamanninn um listina og verkefnið, en 19 ár eru síðan hann sýndi síðast verk á Akureyri. Sýningin stendur til miðvikudagsins 30. mars.

Aaron Mitchell er myndlistarmaður og kennari við Ontario College of Art and Design háskólann í Toronto í Kanada sem og við Háskólann á Akureyri í hug- og félagsvísindum. Hann hefur undanfarið verið í listamannadvöl hjá Listasafninu á Akureyri þar sem hann hefur unnið í verkefni sem ber titilinn Modern Mythology Project. Verkefnið er framþróun og könnun á framkvæmd listrannsókna (Art Based Research – ABR) og nálgunum í listkennslu bæði á Íslandi og í Kanada. Auk þess að vera listamaður lauk Aaron kennsluréttindanámi frá Listaháskóla Íslands 2005.

„Á vinnustofusýningunni í Listasafninu er listin nýtt til að horfa aftur í tímann gegnum ættfræði, landfræði og jarðfræði. Ritúöl, goðafræði, hefðir, þjóðfræði, sagnir og serimóníur renna saman við stjörnufræði, umhverfisfræði og fræði alheimsins,“ segir Mitchell.

Viltu deila þessari frétt?

Tengdar fréttir

Scroll to Top