Akureyrarbær hlýtur viðurkenningu frá Félagi kvenna í atvinnulífinu

Akureyrarbær var á meðal þeirra fyrirtækja og opinberu aðila sem hlutu viðurkenningu Jafnvægisvogar FKA árið 2020. Tilkynnt var um viðurkenningarhafa í gær. Þetta kemur fram á vef bæjarins.

Þar segir: „Jafnvægisvogin, hreyfiaflsverkefni Félags kvenna í atvinnulífinu (FKA), hélt í gær stafrænu ráðstefnuna Jafnrétti er ákvörðun, sem streymt var í beinni útsendingu á vefsíðu RÚV. Þar kynnti Eliza Reid viðurkenningarhafa Jafnvægisvogarinnar, en það eru þeir þátttakendur sem hafa náð að jafna hlutfall kynja í efsta lagi stjórnunar. Á ráðstefnu Jafnvægisvogarinnar árið 2019 hlutu 18 þátttakendur viðurkenningu, en í ár voru viðurkenningarhafar 44.

Jafnvægisvogin veitti viðurkenningar til 30 fyrirtækja, 5 sveitarfélaga og 9 opinberra aðila úr hópi þeirra 116 aðila sem hafa undirritað viljayfirlýsingu og tóku þátt í könnun um aðgerðir sem gripið hefur verið til. Markmið Jafnvægisvogar um 40/60 kynjahlutfall í efsta stjórnendalagi var haft til hliðsjónar við matið. Stór hluti þeirra þátttakenda sem skrifuðu undir viljayfirlýsingu Jafnvægisvogarinnar haustið 2019 hafa náð góðum árangri á þessu sviði og fjölgaði þeim fyrirtækjum sem hafa náð markmiðunum um rúmlega helming á milli ára. Auk þess vekja þátttakendur í Jafnvægisvoginni athygli á jafnréttismálum innan sinna fyrirtækja með ýmsum öðrum hætti.

Þau sveitarfélög sem hlutu viðurkenninguna voru auk Akureyrarbæjar, Múlaþing, Ísafjarðarbær, Reykjanesbær og Sveitarfélagið Ölfus.“

Viltu deila þessari frétt?

Tengdar fréttir

Scroll to Top