Akureyringar – Inda Björk Gunnarsdóttir

Akureyringar er hlaðvarp Akureyrarbæjar þar sem rætt er við alls konar fólk sem á það sameiginlegt að auðga samfélagið með einum eða öðrum hætti.

„Við kynnumst fólki sem vinnur gott starf í þágu íbúa, skyggnumst á bak við tjöldin, fræðumst um áhugaverð verkefni og um leið fjölbreytta þjónustu bæjarins,“ segir í lýsingu á Hlaðvarpinu.

Umsjónarmaður hlaðvarpsins er Jón Þór Kristjánsson, verkefnastjóri upplýsingamiðlunar hjá Akureyrarstofu.

Viðmælandi þáttarins hér að neðan er Inda Björk Gunnarsdóttir, skólastjóri leikskólans Kiðagils.

Viltu deila þessari frétt?

Tengdar fréttir

Scroll to Top