Björk Óðinsdóttir leikur í vinsælum sjónvarpsþætti í Svíþjóð

\"Björk

Akureyringurinn Björk Óðinsdóttir mun á næstu vikum leika í sænska fjölskylduþættinum Gladiatorerna. Þátturinn sem verið hefur á dagskrá stöðvarinnar TV4 í Svíþjóð frá árinu 2000 er gríðarlega vinsæll og er þetta þriðja þáttaröðin sem Björk tekur þátt í. Kaffið.is sló á þráðinn til Bjarkar sem nú er búsett í Danmörku og undirbýr sig á fullu fyrir þættina en upptökur hefjast í næstu viku.

„Þátturinn er eins konar blanda af raunveruleikaþætti og leiknum þætti og gengur út á það að fólk reynir að leysa allskyns þrautir og hindranir og við sem leikum í þáttunum höfum það hlutverk að koma í veg fyrir og trufla,” segir Björk

„Ég fékk símtal frá einum af framleiðanda þáttarins fyrir þremur árum síðan og var spurð hvort ég hefði áhuga á því að vera með,\“ segir Björk um aðdraganda þess að hún fór að leika í þáttunum.\“

„Ég leik víkingastelpu frá Íslandi sem bræðir alla með góðmennsku sinni áður en hún rústar þeim.”

Brot úr þættinum má sjá hér að neðan

Viltu deila þessari frétt?

Tengdar fréttir

Scroll to Top