Brynjar Hólm íþróttamaður ársins hjá Akureyri Handboltafélagi

\"\"

Akureyri Handboltafélag hefur valið Brynjar Hólm Grétarsson sem leikmann ársins hjá félaginu fyrir árið 2017. Hann verður fulltrúi félagsins þegar kjöri á Íþróttamanni Akureyrar verður lýst við hátíðlega athöfn í Hofi næstkomandi miðvikudag, 24. janúar.

Brynjar Hólm er fæddur 22. febrúar 1994 en hann gekk til liðs við Akureyri haustið 2013 og er nú á sínu fimmta tímabili með liðinu. Hann var valinn besti leikmaður 2. flokks félagsins árið 2014 og efnilegasti leikmaður meistaraflokks tímabilið 2014/2015.

Undanfarin ár hefur Brynjar glímt við meiðsli en hefur nú náð að vinna sig úr þeim og var algjör lykilmaður í liði Akureyrar á árinu. Í umsögn um leikmanninn á heimsíðu félagsins segir:

„Hann ar algjör lykilmaður í liði AHF, jafnt í vörn sem sókn og hefur skorað 37 mörk á tímabilinu til þessa. Auk þess að vera afburða leikmaður er Brynjar Hólm glæsileg fyrirmynd annarra varðandi prúðmannlega framkomu, jafnt innan vallar sem utan.\“

Viltu deila þessari frétt?

Tengdar fréttir

Scroll to Top