Egill og Eik gefa út myndband við lagið Eitt Augnablik

Dúettinn Egill Andrason og Eik Haraldsdóttir hefur gefið út tónlistarmyndband við lagið Eitt Augnablik sem kom út í vikunni. Horfðu á myndbandið í spilaranum hér að neðan.

Eitt Augnablik er þriðja lagið sem Egill og Eik gefa út á árinu og þriðja lagið af væntanlegri plötu þeirra, Lygasögur, sem kemur út eftir tvær vikur, fimmtudaginn 29. júlí.

Sjá einnig: Egill og Eik gefa út plötu saman: „Sex ár í vinnslu og sex daga að taka upp“

Egill og Eik hafa undanfarna mánuði staðið að söfnun fyrir útgáfu hljómplötunnar. Þau sömdu dansa, lög og drukku ógeðisdrykki og náðu á endanum að safna um 600 þúsund krónum svo að platan Lygasögur geti orðið að veruleika.

Viltu deila þessari frétt?

Tengdar fréttir

Scroll to Top