Fyrrverandi leikhússtjóri Leikfélags Akureyrar dæmdur fyrir nauðgun

Jón Páll Eyjólfsson, fyrrverandi leikhússtjóri Leikfélags Akureyrar, hefur verið dæmdur í tveggja og hálfs árs skilorðsbundið fangelsi fyrir nauðgun. Þetta kemur fram á Vísi.is.

Brotið átti sér stað árið 2008 en málið komst í fréttirnar árið 2018 þegar Jóni Páli var sagt upp störfum sem leikhússtjóri hjá Leikfélagi Akureyrar. Hann sagði þá ástæðuna vera rekstrarerfiðleika.

Sjá einnig: Jón Páll segir upp störfum sem leikhússtjóri

Í umfjöllun Vísis um málið segir að Jón Páll þurfi að greiða brotaþola í málinu 2,5 milljónir króna í miskabætur ásamt vöxtum. Þá var hann dæmdur til að greiða allan sakarkostnað, þar með talin málsvarnarlaun verjanda síns og þóknun réttargæslumanns brotaþola.

Viltu deila þessari frétt?

Tengdar fréttir

Scroll to Top