Íslenska karlalandsliðið það 20. besta í heiminum

Íslenska karlalandsliðið mun hækka sig um eitt sæti á næsta styrkleikalista Fifa. Það þýðir að Ísland kemst í hóp tuttugu bestu knattspyrnulandsliða heims.

Töfræðingurinn Mister Chip segir frá þessu á Twitter síðu sinni en hann er duglegur í að reikna heimslistana áður en þeir koma út.

Ísland sat í 21. sæti á síðasta lista en eru nú komnir upp 20. sætið og skjóta þjóðum eins og Hollandi og Ekvador ref fyrir rass.

#FUTUREFACT This is the next Ranking FIFA top-60 to be published next Thursday. pic.twitter.com/FZzegelEJU

— MisterChip (English) (@MisterChiping) February 6, 2017

Viltu deila þessari frétt?

Tengdar fréttir

Scroll to Top