Leikarinn og skemmtikrafturinn Jón Gnarr segir að eftir að hann hafi búið og starfað í heilan vetur á Akureyri sé honum orðið ennþá betur ljóst hvað það sárvanti járnbrautalest á Íslandi. Jón segir að lest myndi ekki einungis tryggja vistvænar samgöngur og vöru- og fólksflutninga heldur einnig tryggja lifandi byggð um allt land.
„Ef lest gengi á milli Akureyrar og Reykjavíkur þá myndum við minnka álag á vegina með þungaflutningum, snarminnka bílaumferð og draga úr slysahættu. lestir eru hagkvæmur ferðamáti fyrir fjölskyldur og umhverfisáhrifin yrðu bara jákvæð,“ skrifar Jón á Twitter síðu sinni.
Sjá einnig: Jón Gnarr segist ætla að bjóða sig fram á Akureyri

Jón sem fer með aðalhlutverkið í sýningu Leikfélags Akureyrar á Skugga Svein og hefur því búið á Akureyri í vetur. Hann hefur áður viðrað hugmyndir um járnbrautarteina á milli Reykjavíkur og Akureyrar en segir að eftir búsetuna á Akureyri hafi honum orðið það ljóst að það sárvanti lest á milli staðanna. Hann segir lestarsamgöngur vera pólitískt mál sem mætir helst mótstöðu hjá aðilum sem græða á bílaflutningum.
Sjá einnig: Vill leggja járnbrautarteina á milli Reykjavíkur og Akureyrar
„Lestarsamgöngur á Íslandi eru pólitískt mál. þær eru fyrst og fremst fyrir fólkið. hugmyndin mætir mestri fyrirstöðu hjá þeim aðilum sem reka rútufyrirtæki, olíufyrirtækjum, bílainnflytjendum, bílaleigum og flutningafyrirtækjum #Lestarflokkurinn,“ skrifar Jón á Twitter.
eftir að hafa búið og starfað heilan vetur á Akureyri er mér ennþá betur ljóst hvað okkur sárvantar járnbrautalest. ekki bara fyrir vistvænar samgöngur og vöru- og fólksflutninga heldur til að tryggja lifandi byggð um allt okkar fallega land. plís getum við farið að skoða þetta! pic.twitter.com/OlfYySvXkT
— Jon Gnarr (@Jon_Gnarr) March 28, 2022
ef lest gengi á milli Akureyrar og Reykjavíkur þá myndum við minnka álag á vegina með þungaflutningum, snarminnka bílaumferð og draga úr slysahættu. lestir eru hagkvæmur ferðamáti fyrir fjölskyldur og umhverfisáhrifin yrðu bara jákvæð pic.twitter.com/2ZUBKgOjN0
— Jon Gnarr (@Jon_Gnarr) March 28, 2022
lestarsamgöngur á Íslandi eru pólitískt mál. þær eru fyrst og fremst fyrir fólkið. hugmyndin mætir mestri fyrirstöðu hjá þeim aðilum sem reka rútufyrirtæki, olíufyrirtækjum, bílainnflytjendum, bílaleigum og flutningafyrirtækjum #Lestarflokkurinn pic.twitter.com/7qnEerwVn3
— Jon Gnarr (@Jon_Gnarr) March 29, 2022
