KA gerði jafntefli í fyrsta leik

KA og Fjölnir mættust í dag í fyrstu umferð Pepsi deildarinnar. Leikurinn fór fram í Egilshöll fyrir framan 1380 áhorfendur.

Leikurinn byrjaði fjörlega en strax á 2\’ mínútu kom Ævar Jarl Jónsson Fjölni yfir. KA menn voru ekki lengi að svara fyrir sig og jöfnuðu leikinn strax á 14\’ mínútu en þar var Daníel Hafsteinsson að verki. Fjölnir komust aftur yfir þremur mínútum síðar þegar Birnir Snær Ingason skoraði. Aftur svöruðu KA menn þegar Ásgeir Sigurgeirsson skoraði á 37\’ mínútu, ótrúlegur fyrr hálfleikur í Egilshöll.

Seinni hálfleikur var þó ekki jafn líflegur og sá fyrr en engin mörk komu í seinni hálfleik og leik því leiknum með 2-2 jafntefli.

Mark á annarri mínútu. Fjörið heldur áfram í Pepsi. Frábær umgjörð og fullt af fólki. Vel gert Fjölnismenn. #pepsideildin , #fotboltinet pic.twitter.com/NRR4lpLRA7

— Guðni Bergsson (@gudnibergs) April 28, 2018

Næsti leikur KA manna er á þriðjudaginn 1. maí þegar liðið heimsækir Hauka heim í Mjólkurbikarnum.

Viltu deila þessari frétt?

Tengdar fréttir

Scroll to Top