KA-TV, sjónvarpsstöð Knattspyrnufélags Akureyrar sýndi alls 279 klukkustundir í beinni útsendingu árið 2019.
KA-TV er án efa ein öflugasta sjónvarpsstöð sem íþróttafélag hér á landi býður uppá en árið 2019 var sýnt beint frá bæði meistaraflokkum og yngri flokkum félagsins í handbolta, fótbolta, blaki og júdó. Útsendingar KA-TV fara í gegnum YouTube.
Ágúst Stefánsson, markaðs- og viðburðarstjóri KA, segist vera stoltur af þessari tölfræði. „Viðurkenni að ég er frekar stoltur af þessum tölum,“ skrifar hann á Twitter.
2️⃣0️⃣1️⃣9️⃣ 🎥 KA-TV sýndi alls 279 klukkustundir beint árið 2019. Sýnt var frá bæði meistaraflokkum og yngriflokkum í handbolta, fótbolta, blaki og júdó. Takk fyrir stuðninginn og áhorfið kæru KA-menn! #LifiFyrirKA pic.twitter.com/G5v5IrnOUz
— KA (@KAakureyri) January 9, 2020
Viðurkenni að ég er frekar stoltur af þessum tölum! https://t.co/AVs80KkoKu
— Ágúst Stefánsson (@aguststefans) January 9, 2020
