Ný tónlist frá Sigga Litla

Sigurður Óskar Baldursson, eða Siggi Litli, rappari frá Akureyri gaf út lag og myndband í vikunni. Lagið heitir Of Oft og er aðgengilegt á Youtube og Spotify meðal annars.

Of Oft er annað lagið sem Siggi gefur út af komandi plötu sem hann er að vinna í. Lagið Sætar Stelpur, sem kom út í janúar, verður einnig á plötunni.

„Þetta lag er lag númer tvö í nýrri stefnu á tónlist sem ég er að leika mér í og er mjög spenntur fyrir, ég og prodúserinn minn Birkir Leó (B-leo Beats) unnum saman að þessu lagi og vonum að það komi skemmtilega á óvart og sé vonandi öðruvísi en það sem fólk er að hlusta á í nýrri íslenskri tónlist í dag og sérstaklega tengdu hip hop\’i,“ segir Siggi í spjalli við Kaffið.

„Þetta lag er af komandi rap-pop-punk plötu sem ég er að dunda mér í og setur vonandi fínan tón fyrir henni. Of Oft og Sætar Stelpur verða vonandi þéttur grunnur af plötunni og efni hennar. Myndbandið við Of oft var gert í pínu flyti en vandað samt sem áður. Ég ákvað að hafa myndbandið ekki of flókið en nóg til að passa vel við lagið.“

Viltu deila þessari frétt?

Tengdar fréttir

Scroll to Top