Í dag, 14. nóvember, er alþjóðlegur dagur sykursjúkra. Ingibjörg Óladóttir hefur verið með sykursýki, týpu 1, í um 30 ár, eða frá því að hún var sex ára. Hún hefur nú hafið sölu á svokölluðum „Popsocket\’s“, aukahlut sem fer aftan á síma, til styrktar sykursjúkum börnum.
Hún hannaði merki og lét framleiða fyrir sig. Allur ágóðinn af sölunni rennur beint til Dropans – styrktarfélag barna með sykursýki. Ingibjörg segir að hún hafi sérstaklega beðið um að peningurinn færi í sumarbúðir fyrir sykursjúk börn.
„Ég hafði ekki tækifæri að fara í sumarbúðir fyrir sykursjúka sem barn en vann eitt sumarið sem leiðbeinandi í þessum sumarbúðum , og það sem þetta gerði mikið fyrir mig að sjá og finna að maður er ekki einn í þessu landi eða heimi með sykursýki týpu 1. Á þeim tíma var Facebook ekki búið að ná vinsældum eins og í dag og ekki mikið um samfélagsmiðla, og þá þekkti ég engan með sykursýki týpu 1. Í sumarbúðunum kynntist ég einni stúlku á mínum aldri og höfum við enn samband við hvor aðra í dag. Ég kynntist öðrum heimi í sumarbúðunum, þar sem allir eru eins og með sama markmiðið, þetta er staður og stund sem mér finnst að öll sykursjúk börn með týpu 1 ættu að fá að upplifa og kynnast þá einnig örðum börum í sömu sporum.“

„Ég hef alltaf sagt að þú veist ekki hvernig er að vera með sykursýki nema upplifa það sjálfur. Sykursýkis \“ grín\“ og brandara eru bara ekki eins ef maður er með sykursýki en ekki , mig langaði bara að láta gott af mér leiða og ég hannaði þetta merki og létt prenta það á svona popsocket. og er að selja hann á 1000kr stk og svo er 200kr sendingarkostnaður, allur ágoði rennur beint til Dropans.“
Hægt er að panta hjá Ingibjörgu í gegnum Facebook-síðu hennar.
