Leikmenn og þjálfari Þórs eru sakaðir um að hafa brotið lög gegn veðmálaauglýsingum á Íslandi í viðtölum eftir sigurleik gegn Grindavík í Lengjudeildinni í knattspyrnu í gær.
Þeir Páll Viðar Gíslason þjálfari liðsins, Jónas Björgvin Sigurbergsson og Alvaro Montejo, mættu í viðtal hjá Fótbolti.net klæddir derhúfum merktum veðmálafyrirtækinu CoolBet. Hér á landi er bannað með lögum að auglýsa veðmálafyrirtæki.
Íþróttafréttamaðurinn Tómas Þór Þórðarson vakti athygli á þessu á Twitter í gær. Hann telur að þetta athæfi hafi skilað einhverjum pening í kassann hjá Þór.

Mikil umræða hefur skapast eftir atvikið en á meðan sumir telja Þórsara hafa orðið sér til skammar benda aðrir á að lög um veðmálaauglýsingar hér á landi séu úrelt og hrósa Þórsurum.
Ef ég væri forsvarsmaður Ísl getrauna myndi ég labba í burtu frá deildinni ef þetta eru móttökur liðanna í nýrri Lengjudeild.
— saevar petursson (@saevarp) June 20, 2020
Er ekki bara nokkuð svipað að vera með derhúfu með ísbirni og að auglýsa léttöl?
— Magnús Sigurbjörnsson (@sigurbjornsson) June 20, 2020
Þetta er absurd. Geta allir veðjað og það er hægt að auglýsa, en auglýsingatekjur geta ekki samkvæmt lögum skilað sér til íslenskra fjölmiðla og íþróttafélaga.
— Davíð Eldur (@davideldur) June 20, 2020
Þórsarar gera okkur greiða með að benda á hvað þetta er fáránlegt, eiga þakkir inni god damn it
Legalize It! https://t.co/v2hyrldL6v
