Þorsteinn Gíslason sendir frá sér stiklu fyrir stuttmynd

Þorsteinn Gíslason hefur í vetur unnið að verkefni í skapandi tónlist við Tónlistarskólann á Akureyri. Verkefni Þorsteins er gerð stuttmyndar með hljóðsetningu.

Þorsteinn sá um handritsgerð, leikstjórn, kvikmyndatöku, klippingu, myndvinnslu, tónsmíðar, útsetningar, hljóðupptökur, hljóðblöndun, lokavinnslu hljóðs, og samsetningu myndar og hljóðs í myndinni, og má því með sanni segja að verkefnið hafi verið umfangsmikið.

Þorsteinn hefur sent frá sér stiklu sem jafnframt er tónlistarmyndband við lokalag myndarinnar \“Stattu með sjálfum þér.\“

Viltu deila þessari frétt?

Tengdar fréttir

Scroll to Top