Tímavélin – Bragi Bergmann fær að heyra það

Tímavélin er nýr liður hér á Kaffinu þar sem við munum birta skemmtilega og eftirminnilega hluti, myndbönd, myndir, viðtöl og fleira úr fortíðinni.

Að þessu sinni rifjum við upp ógleymanlegt atvik, en í júlí árið 1992 spiluðu ÍA og Valur mikilvægan leik á Íslandsmótinu í knattspyrnu. Bragi Bergmann dómari leiksins var með hljóðnema og tók allt upp sem fram fór á vellinum, án þess að leikmenn liðanna vissu.  Það gekk mikið á í þessum leik og vakti upptakan mikla athygli þegar hún var sýnd skömmu eftir leikinn.

Skaginn var nýliði í efstu deild en endaði tímabilið sem meistari. Sigurður Jónsson var fyrirliði ÍA en Sævar Jónsson fór fyrir Valsmönnum. Sjón er sögu ríkari

Viltu deila þessari frétt?

Tengdar fréttir

Scroll to Top